Desemberuppbót 2014

Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 73.600 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Þeir starfsmenn sem fá greidda desemberuppbót jafnharðan með tímakaupi fá greidda kr. 7.200 eingreiðslu 15. desember og kr. 9,62 hækkun á desemberuppbót pr. klst. eða kr. 45,00 frá 1. maí að telja.

Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.

Sá tími sem starfsmaður er í fæðinarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

> Ríkissjóður kr. 73.600
> Reykjavíkurborg kr. 79.500
Strætó kr. 79.600
Orkuveitan kr. 85.400
Samband íslenskra sveitafélaga kr. 93.500
Landsvirkjun kr. 105.933

Sjá reiknivél fyrir útreikning desemberuppbótar.