Fréttatilkynning frá iðnaðarmannafélögunum

Félög iðnaðarmanna, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, Samiðn, Félag hársnyrtisveina og RSÍ sem eru með samstarf við endurnýjun kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins,  vilja koma  á framfæri að þau telji að kjarasamningar sem voru undirritaðir voru  í dag [29. maí 2015] komi ekki  nægjanlega  til móts við framlagðar kröfur og hefur því sáttasemjari boðað til fundar n.k þriðjudag.

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla meðal  félagsmanna um heimild til verkfallsboðunar og lýkur henni kl. 10:00 n.k mánudag