Fréttatilkynning – niðurstaða allsherjaratkvæðagreiðslu um verkfallsheimild

Fréttatilkynning frá iðnaðarmannafélögunum mánudaginn  1. júní  2015 vegna allsherjaratkvæðagreiðslu um verkfallsheimild.

Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf um endurnýjun á almenna kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar, Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar.
Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.
Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6%
Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní n.k. með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k
Já sögðu 75,1%.
Nei sögðu 22,1%.
Þeir sem ekki tóku afstöðu voru 2,8%.
Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum, koma framangreind verkföll til framkvæmda.