Nýr kjarasamningur samþykktur með 91% greiddra atkvæða

Sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ um kjarasamning milli aðildarsamtaka ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 lauk kl. 12 á hádegi, föstudaginn 26. febrúar 2016.

Já sögðu 9.724 eða 91,28%. Nei sögðu 832 eða 7,81%. Auðu skiluðu 97 eða 0,91%. Kjarasamningurinn var því samþykktur.

Á kjörskrá voru 75.635. atkvæði greiddu 10.653 eða 14,08%.

Kjörstjórn aðildarsamtaka ASÍ