Sameiginlegur kynningarfundur Iðnsveinafélags Skagafjarðar, Öldunnar – stéttarfélags og Verslunarmannafélags Skagafjarðar verður haldinn á Mælifelli, miðvikudaginn 15. janúar 2014, kl. 18:00.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun kynna innihald nýgerðs kjarasamnings.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum þessara félaga og eru þeir eindregið hvattir til að mæta og fá kynningu á efni samningsins.