Umsókir um orlofshús og fellihýsi 2012

Í byrjun næstu viku verða umsóknareyðublöð um orlofshúsið í Varmahlíð og fellihýsið póstsend til félagsmanna.  Gefinn er frestur til að sækja um til 12. maí 2011.  Ef einhverjar vikur verða óúthlutaðar eftir að búið verður að afgreiða umsóknirnar, þá mun þeim verða ráðstafað þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær og skiptir þá engu hvort viðkomandi er félagsmaður eða ekki.

Mælst er til þess að umsóknareyðublöð hér á heimasíðunni séu notuð til að senda inn umsóknirnar.

Leiguverð eru óbreytt frá árinu 2008 varðandi orlofshúsið. Vikuleigan er 18.000 kr. og helgarleiga 9.000 kr. Leiga á fellihýsinu hækkar og verður 12.000 kr. fyrir sex daga.  Helgarleiga er 7.000 kr.

1 thought on “Umsókir um orlofshús og fellihýsi 2012”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *