Aðalfundi 2016 lokið

Aðalfundur Iðnsveinafélags Skagafjarðar fór fram á Kaffi Krók þann 13. maí 2016.

Í stuttu máli fóru aðalfundarstörf vel fram að venju og má segja að hallarbylting hafi ekki verið í huga nokkurs manns.  Samþykktir fundarins voru þessar:

  • Stjórn félagsins var endurkjörin einróma
  • Trúnaðarmannaráð var endurkjörið einróma
  • Orlofsnefnd var endurkjörin einróma
  • Skoðunarmenn voru reikninga endurkjörnir einróma
  • Ákvörðun um félagsgjald var óbreytt, þ.e. 0,85% af öllum launum og að hámarki 50.000 kr. á árinu 2016.

Björgvin Sveinsson formaður félagsins flutti ítarlega skýrslu stjórnar og verður hún birt í sérstarkri færslu hér á síðunni.