Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 73.600 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Þeir starfsmenn sem fá greidda desemberuppbót jafnharðan með tímakaupi fá greidda kr. 7.200 eingreiðslu 15. desember og kr. 9,62 hækkun á desemberuppbót pr. klst. eða kr. 45,00 frá 1. maí að telja.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðinarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
> Ríkissjóður kr. 73.600
> Reykjavíkurborg kr. 79.500
> Strætó kr. 79.600
> Orkuveitan kr. 85.400
> Samband íslenskra sveitafélaga kr. 93.500
> Landsvirkjun kr. 105.933