Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist þann 1. júní 2016 miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05. 2015-30.04. 2016), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl s.l. eða eru í starfi 1. maí 2016.
Orlofsuppbótin er 44.500 kr.
Húsasmiðir og pípulagningamenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.