Breyting á skattlagningu séreignasparnarðar

Miðstjórn Samiðnar lýsir mikilli andstöðu við tillögu ríkisstjórnarinnar um einhliða breytingu á skattlagningu séreignarsparnaðar og lítur á það sem alvarlegt inngrip í frjálsa kjarasamninga. Miðstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær 31.október ályktun þar sem áformum ríkisstjórnarinnar er harðlega mótmælt:

 

„Miðstjórn Samiðnar lýsir mikilli andstöðu við tillögu ríkisstjórnarinnar um einhliða breytingu á skattlagningu séreignarsparnaðar sem fram kemur í fjárlagafrumvarpinu.

Fyrirkomulag skattlagningar á séreignarsparnaði var og er hluti af samkomulagi milli stjórnvalda og stéttarfélaga og er því hluti af kjarasamningum. Einhliða ákvörðun stjórnvalda um breytingar á því samkomulagi er mjög alvarlegt inngrip í frjálsa kjarasamninga.

Við þær fjárhagslegu aðstæður sem íslenskt þjóðfélag býr við nú, er mikilvægt að hvetja almenning til sparnaðar og leggja fyrir til elliáranna. Miðstjórnin krefst þess að ríkisstjórnin dragi til baka allar hugmyndir um breytingar á skattlagningu séreignarsparnaðar og hugmyndir um frekari skattlagningu á lífeyrissjóði. Jafnframt vill miðstjórn Samiðnar minna á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um jöfnun lífeyrisréttinda sem fylgdu síðustu kjarasamningum en lítið hefur farið fyrir tillögum þar um.“

Tekið af vef Samiðnar

4 thoughts on “Breyting á skattlagningu séreignasparnarðar”

  1. Hey there I am so glad I found your webpage, I really found you by mistake, while I was searching
    on Google for something else, Anyways I am here now and would just like to say thank you for a incredible
    post and a all round thrilling blog (I also love
    the theme/design), I don’t have time to read through it all at the
    minute but I have book-marked it and also included your RSS feeds, so when I have time
    I will be back to read a lot more, Please do keep up the awesome work.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *