Orlofsuppbótin kr. 25.800

Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist þann 1.júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 01. maí.  Orlofsuppbótin er kr. 25.800. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót. 

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Sjá útreikning orlofsuppbótar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *