Vertu á verði

Vertu á verði!

– stöndum saman og rjúfum vítahring verðbólgunnar

Iðnsveinafélag Skagafjarðar og önnur stéttarfélög innan ASÍ hefja í dag átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Almenningur og atvinnulífið eru hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar. Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar.

 

Sendu ábendingar um verðhækkanir á – www. vertuaverdi.is

Á heimasíðu átaksins www.vertuaverdi.is geta allir sent inn ábendingar um verðhækkanir á fljótlegan og einfaldan hátt. Þannig getum við sameiginlega skapað mikilvægt aðhald, meðvitund og umræðu um verðlagsmál.

 

Það er hagsmunamál okkar allra að vera á verði og láta vita.

 

Verðbólgan versti óvinur launafólks

Launafólk er langþreytt á að hóflegar launahækkanir sem samið er um í kjarasamningum séu sífellt notaðar til að réttlæta miklar verðhækkanir og aukna verðbólgu.  Við endurskoðun kjarasamninga nú í janúar lögðu fulltrúar launafólks mikla áherslu á að samstaða yrði meðal fyrirtækja og opinberra aðila um að sýna aðhald í verðhækkunum svo nýtilkomnar launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti launafólks.

 

Allir þurfa nú að taka höndum saman – sýna ábyrgð og stöðva verðhækkanir – það gagnast okkur öllum.

2 thoughts on “Vertu á verði”

  1. Thank you for your sharing. I am worried that I lack creative ideas. It is your article that makes me full of hope. Thank you. But, I have a question, can you help me?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *